12. January kl. 10:29 eftir Gummi Gulla
Á því herrans ári 2012 stendur íslenska þjóðin frammi fyrir mikilvægri ákvörðun: hver skal vera næsti þjóðarleiðtogi Íslands? Í nýársávarpi sínu gaf Ólafur Ragnar Grímsson í skyn að hann ætlaði ekki að bjóða sig fram í fimmta sinn. Sú tilkynning hefur hleypt af stað þó nokkurri umræðu um hver ætti að taka við kyndlinum (Kindle-num?). Við munum fylgjast vel með umræðunni um forsetakapphlaupið og birta áhugaverðar niðurstöður hér á blogginu.
Lesa meira
11. January kl. 03:18 eftir Gummi Gulla
Íslensk fyrirtæki eru hægt og rólega að átta sig á því að árið er 2012 og samfélagsmiðlar eru komnir til þess að vera. Stór sprenging í notkun á Facebook og Twitter á Íslandi hefur ollið því að fyrirtæki eru í sífellt auknu mæli að sækja á þessa miðla til þess að ná betur til viðskiptavina. Mörg fyrirtæki sjá þarna tækifæri til þess að taka þátt, önnur að senda út skilaboð og enn önnur fara út í samfélagsmiðla vegna þess að allir aðrir eru að gera það. En hvað þýðir þetta fyrir fyrirtækin? Lesa meira
16. November kl. 03:56 eftir Gummi Gulla
Það er staðreynd að sum fyrirtæki og einstaklingar eru lítið í umræðunni á netinu, sem vekur upp spurningar um hvað annað er hægt að gera heldur en fylgjast með umræðu um vörumerkið sjálft. Lítil, ný eða fyrirtæki með lítið umtal í netheimum finnast þau stundum fá takmarkað virði af því að fylgjast með umræðu á netinu vegna þess hversu lítið er sagt um þau eða hversu langur tími líður á milli umtals. Lesa meira
6. November kl. 02:52 eftir Gummi Gulla
Við rákum okkur í þessa stórskemmtilegu grein á bloggi sem kallast Twitterfacts. Það sem gerir hana svo skemmtilega er að hún fer í gegnum ástand Twitterheima á Íslandi snemma árs 2008. Okkur fannst þar af leiðandi mjög sniðugt að gera sambærilega færslu, sem myndi útskýra ástandið snemma árs 2010. Lesa meira
27. September kl. 02:33 eftir Gummi Gulla
Fyrir nokkru síðan gerðum við hjá CLARA tilraunir með að sýna á skemmtilegan hátt markaskorun á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu. Við fengum frábær viðbrögð við þeirri greiningu, því liggur beint fyrir að gera slíkt hið sama með nýloknu Íslandsmeistaramóti. Lesa meira
20. September kl. 02:31 eftir Gummi Gulla
Óhætt er að segja að íslendingar séu duglegir við að viðra skoðanir sínar á netinu og líklegast nýr kafli í bókmenntasögu þjóðarinnar tekinn við þar sem rafrænn ritmáti ræður ríkjum. Með tilkomu Internetsins og samfélagsmiðla eins og Facebook, Twitter og blogsíðna getur hver sem er stofnað sinn eigin fjölmiðil og náð til augu milljóna manna á svipstundu.
Lesa meira
15. July kl. 02:29 eftir Gummi Gulla
Nú anda andfótboltaáhugamenn léttar þar sem heimsmeistaramótinu í knattspyrnu var að ljúka. Þeir hafa núna rétt rúmlega mánuð þar til enski boltinn byrjar aftur, við mælum með að nota þann tíma vel. Farið í frí, útá land, takið með ykkur nesti og notið tíman í að kynnast aftur. Ekki samt gleyma að tippa fyrir fyrstu umferðina síðan… Lesa meira
16. March kl. 02:23 eftir Gummi Gulla
Föstudaginn 12. mars 2010 var Reykjavík Internet Marketing Conference (RIMC) haldið í Smárabíó. Við hjá Vaktaranum mættum auðvitað galvösk og vorum með bás, ásamt því að sitja á fyrirlestrunum.
Þrátt fyrir að Expóið fékk ekki eins mikið exposure og við hefðum verið til í, þá voru fyrirlestrarnir svo ótrúlega flottir að þetta var vel þess virði.
Hérna er smá samantekt á því helsta sem kom fram. Lesa meira
15. March kl. 02:21 eftir Gummi Gulla
Helgin sem var að líða var mjög viðburðarrík fyrir Vaktarann og CLARA gengið. Við vorum með bás á RIMC ráðstefnunni, sem er ráðstefna um markaðssetningu með áherslu á netmiðla. Við fengum einnig tækifæri til að vera með bás á Netið 2010 sýningunni. Bæði RIMC og Netið voru haldin í Smáralind.
Lesa meira