13. September kl. 06:20 eftir Vaktarinn
Það gleður okkur að fá að kynna glænýja vefsíðu Vaktarans. Vefsíðan hefur verið í vinnslu í tæplega mánuð og er nú loksins fullbúin og til í slaginn. Fyrrum vefsíða Vaktarans (sjá á mynd fyrir neðan) var orðin lúin og gömul, enda hátt í tveggja ára gömul. Hraði netsins er það mikill að bera mætti saman tveggja ára gamla vefsíðu við hund á fimmtugsaldri. Lesa meira
11. September kl. 04:12 eftir Maggi
Við settum Vaktarann 2.0 í loftið fyrir stuttu síðan. Með uppfærslunni komu nokkrir mjög öflugir eiginleikar. Einn af þeim er að búa til RSS veitu úr niðurstöðum í Vaktaranum.
Með því að búa til RSS veitu er hægt að tengja hana við innri og ytri vefi fyrirtækisins. Þannig getur þú fengið efni um þínar leitir beint á þessa vefi, hvort sem um óritskoðað efni er að ræða, eða efni handvalið af þér. Lesa meira