Vaktarinn er knúinn af CLARA Insight. Hjá CLARA vinnur framúrskarandi teymi hörðum höndum dag sem nótt við að viðhalda og betrumbæta virkni, hraða og gæði Vaktarans.
Brian Suda
Gagnaframsetningarstjóri | brian hjá vaktarinn.is
Brian Suda er uppalinn í Bandaríkjunum en sá fljótt ljósið og flutti til Íslands eftir dvöl í hinum og þessum löndum. Herra Suda hefur mjög flottan feril að baki. Hann er með meistaragráðu í tölvunarfræði og er einn af höfundum bókarinnar „Using Microformats“ sem gefin hefur verið út á þremur tungumálum. Herra Suda stundar það að vera ræðumaður á flottum ráðstefnum um hin og þessi tæknimál. Þessi ljúfi maður er snillingurinn á bakvið framsetningu gagna og annað tengt hönnun Vaktarans.
Guðmundur
Markaðsstjóri | gudmundur hjá vaktarinn.is
Samfélagsmiðlafíkillinn Guðmundur hefur undanfarin 2 ár kynnt sér og öðlast þekkingu í áhrifum og eðli umtals á netinu. Þessi skemmtilega árátta hans að sanka að sér öllu því sem snertir samfélagsvefi og umtal nýtist Vaktaranum einstaklega vel þar sem það er, jú, það sem Vaktarinn gerir. Hann hefur lengi haft áhuga á markaðsfræði og sálfræði, lagði nám á sálfræði við Háskóla Íslands og er nú í Edinburg að tækla masterinn í markaðsfræði.
Gunnar Hólmsteinn
Framkvæmdastjóri | gunnar hjá vaktarinn.is
Auðvelt er að lýsa Gunnari sem líflegum og opnum manni sem finnst fátt skemmtilegra heldur en að tala við fólk og víkka sjóndeildarhringinn sinn. Gunnar vann áður hjá Vífilfelli þar sem hann var meðal annars vörumerkjastjóri Coca-Cola, ásamt því að annast markaðsrannsóknir fyrir fyrirtækið. Reynsla hans og þekking nýtist vel innan liðsins, þar sem hann tekur virkan þátt í að móta þróunina á Vaktaranum og öðrum lausnum CLARA.
Jón Eðvald
Tæknistjóri | jon hjá vaktarinn.is
Jón Eðvald hefur yfir árin öðlast mikla þekkingu á því hvernig sé best að rista brauð. Hann hefur einnig sankað að sér mikilli þekkingu í mælskulist og hönnun, sem hann nýtir sér óspart í daglegu lífi. Það skemmir ekki fyrir að hann er einnig mjög fær hugbúnaðarhönnuður og er ábyrgur fyrir CLARA kerfinu sem knýr áfram Vaktarann. Jón Eðvald hefur gífurlega reynslu í forritun af ýmsu tagi og kemur með sína einstöku sýn á hugbúnaðarþróun á hverjum degi og miðlar henni til samstarfsmanna.
Magnús Ingi
Vefhönnunarstjóri | maggi hjá vaktarinn.is
Magnús Ingi, betur þekktur sem Maggi Trymbill, hefur verið tónlistarsnillingur frá því að hann var ungur og stundaði þá iðju að berja trommuskinn og leika ljúfum fingrum um píanó. Hann hefur einnig eytt öllum sínum tíma þess á milli að stúdera vefþróun og hefur um 10 ára reynslu í hönnun, þróun og útfærslum á notendaviðmótum. Hann hefur sömuleiðis starfað hjá fyrirtækjum á borð við Nordic eMarketing og Háskóla Íslands, þar sem hann tók þátt í að þróa og viðhalda flóknum kerfum. Þessi reynsla hans, bæði úr tónlist og vefhönnun, hefur komið Vaktaranum að góðum notum.
Steinn Steinsen
Gagnahýsingarstjóri | steinn hjá vaktarinn.is
Steinn er mjög hæfileikaríkur forritari, hefur reynslu af stjórnun flókinna tölvukerfa og þróun stórra tölvuleikja. Áður en hann gekk til liðs við Vaktarann vann hann hjá Lionhead Studios við þróun leiksins Fable 3. Steinn passar uppá að gögnin sem Vaktarinn þarf á að halda séu reiðubúin hvenær sem er, hvar sem er og eins hratt og hægt er.
Sveinbjörn
Gagnaöflunarstjóri | sveinbjorn hjá vaktarinn.is
Sveinbjörn er meistaramenntaður heimspekingur og sagnfræðingur sem notar menntun sína í bland við gríðarlega forritunarreynslu til að bæta gagnaöflun og gagnabakenda Vaktarans. Hann er einnig alltaf vakandi fyrir því hvað mætti bæta sem aðrir koma kannski ekki auga á og í raun kemur hann víða við í fyrirtækinu, enda er honum ekkert óviðkomandi. Hann hugsar mikið, þess vegna er hann mikið.

Twitter
Facebook